Golftól · Skaftaval
Hvaða skaft hentar þér?
Fimm spurningar um sveifluna þína – og þú færð stífleika, þyngd, beygjupunkt og snúning sem gott er að byrja með í mátun.
Svona virkar skaftavalið
- Stífleikinn ræðst fyrst og fremst af sveifluhraðanum. Lengd í lofti er breytt í áætlaðan sveifluhraða.
- Hraður taktur hleður skaftið meira og kallar á stífara og þyngra skaft en hraðinn einn segir til um.
- Beygjupunkturinn hefur áhrif á flugið: lágur beygjupunktur lyftir boltanum, hár heldur honum niðri.
- Snúningur (e. torque) segir til um hve mikið skaftið snýst í högginu. Minni snúningur heldur kylfuhausnum stöðugri.
Áður en þú kaupir
Skaft lagar ekki sveiflu. Ef boltinn sveigir mikið er líklegra að það sé sveiflan eða höggflöturinn en skaftið – þar hjálpar golfkennari meira en nýtt skaft.
Prófaðu alltaf áður en þú kaupir. Golfverslanirnar bjóða margar mátun með mæli og golfkennarar líka. Verð á kylfum: dræverar í íslenskum verslunum.
Fleiri golftól
BoltavalGolfboltinn sem hentar þér – með verði í íslenskum verslunum.Vegalengdir í dagHve langt fer hver kylfa í hitanum og vindinum á vellinum í dag?VallarforgjöfVallar- og leikforgjöf fyrir hvaða teig sem er – og skormismunur hringsins.KylfulengdEru kylfurnar af réttri lengd miðað við hæð þína og handleggi?