Golftól · Boltaval
Hvaða bolti hentar þér?
Fimm spurningar – og þú færð þá þrjá bolta sem henta best, með lægsta verði á bolta í íslenskum golfverslunum.
Svona veljum við
- Fyrst er horft á sveifluhraðann: hver bolti er hannaður fyrir ákveðið bil, og framleiðendurnir gefa það upp.
- Tour-boltar eru með úretanhúð sem grípur í rifur fleygjárnanna og stoppar á flötunum. Ódýrari boltar eru harðari að utan og spinna minna.
- Lítill spuni af teig þýðir oftast beinni og lengri högg – mikill spuni við flatirnar þýðir að boltinn stoppar.
- Verðin eru lægsta verð á bolta hjá íslenskri golfverslun, í 3 eða 12 bolta öskju, eins og það er birt á golfbúnaðarsíðunni.
Prófaðu sjálf(ur)
Besta prófið kostar eina öskju: sláðu nokkur vipp og pútt með tveimur boltum hlið við hlið á æfingaflötinni og sjáðu hvor stoppar og hvor líður betur.
Golfið raðar eingöngu eftir því hvað hentar þér. Engin verslun eða framleiðandi greiðir fyrir sæti; ef það breytist verður það merkt „Kostað“.
Fleiri golftól
SkaftavalHvaða stífleiki, þyngd og beygjupunktur henta sveiflunni þinni?Vegalengdir í dagHve langt fer hver kylfa í hitanum og vindinum á vellinum í dag?VallarforgjöfVallar- og leikforgjöf fyrir hvaða teig sem er – og skormismunur hringsins.KylfulengdEru kylfurnar af réttri lengd miðað við hæð þína og handleggi?