Jarðvinnu við stækkun golfskála Keilis á að ljúka 15. nóvember
Vinnuvélar eru komnar á fullt við stækkun golfskála Golfklúbbsins Keilis á Hvaleyrarvelli og stefnt er að því að jarðvinnu ljúki um miðjan nóvember.

Framkvæmdir við stækkun golfskálans á Hvaleyrarvelli eru komnar á fullt skrið, samkvæmt vef Golfklúbbsins Keilis. Jarðvinnu á að ljúka 15. nóvember og þá hefst uppsteypa viðbyggingarinnar. Þegar loka þarf stærri hluta svæðisins verður umferð gangandi og akandi færð norður fyrir skálann. Klúbburinn vinnur jafnframt að beinu streymi af framkvæmdasvæðinu svo félagsmenn geti fylgst með.
Þjónustan í skálanum var þegar skert fyrir veturinn. Verslunin er opin með skrifstofunni kl. 8–16 og veitingasalan kl. 9–15 á virkum dögum. Golfbílar eru ekki leyfðir vegna aðstæðna á vellinum og verður það líklega þannig út tímabilið, en engin áform eru um að loka völlunum.
Golffréttir dagsins í pósthólfið alla virka morgna.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Golfskálinn á Kiðjabergi lokaður en völlurinn enn opinn
- Fréttaskot · KlúbbarnirNýtt
Bændaglíma GR safnaði 520.500 krónum fyrir Píeta-samtökin
- Fréttaskot · ÁhugamennNýtt
Veigar og ETSU unnu Trinity Forest-mótið í Dallas
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Reed snýr aftur í Madríd, níu kort í boði í Virginíu og annar hringur á Gotlandi
- Heimsgolfið · GolfheimurinnNýtt
Seldi golfföt á Opna bandaríska – keppir þar sjálfur á næsta ári
- Heimsgolfið · Korn FerryNýtt
Níu kort á PGA-mótaröðina enn í boði á lokamóti Korn Ferry